HURÐIR


Vantar þig útihurð?
Falleg útihurð getur gert gæfumuninn hvað
varðar ásýnd húseignarinnar. Hún skapar ekki bara ákveðin hughrif þegar þú kemur heim eða þegar gesti ber að garði, heldur sér hún einnig um að halda kuldabola frá.

Þarftu að láta taka hurðina í gegn?
Gismótek tekur einnig að sér að gera við hurðir og þá erum við ekki endilega að tala um virkilega kjörgripi heldur jafnvel bara hversdagslegar útihurðir. Að gera upp gamla hurð felst oft í því að hreinsa hana, laga skemmdir, pússa og mála/lakka/ollíubera upp á nýtt. Það er mikilvægt að skoða ástand hurðarinnar vel áður en hafist er handa og meta hvort gera þurfi við. Við gerum þetta allt fyrir þig.
Það er mikil prýði af vel heppnuðum frágangi í kringum hurðir og glugga

Hér má sjá vandaðan frágang Gismóteks á Tjarnargötu 36 þar sem sérhæfður frágangur og fagleg vinnubrögð standast tímans tönn og tískustrauma.
Falleg smáatriði geta lyft grettistaki
Traust handbragðið leynir sér ekki.
Hér má sjá yfirfellda lista í fulningahurð.



