top of page

NOKKUR VERKEFNI

Hornskakkir gluggar?
Ekkert mál!
Gismotek French window - side panel

Gismótek sérhæfir sig í smíði á gamaldags gluggum og frönskum gluggum sem gefa húseigninni þinni glæsibrag.

Sérvalinn smíðaviður 
french window by gismotek

 Gluggar og hurðir hafa mikið að segja um svip eignarinnar og ber ævinlega að vanda bæði til smíði og frágangs á þeim.

Tvöföld innihurð
Gismotek double door

Vönduð tvöföld innihurð með fösuðu sérvöldu gleri prýðir nú fallegt heimili á góðum stað í bænum.

Handrið í smíðum 
Fallegir pílárar 
Smáatriðin skipta máli
IMG_E2352.JPG

Skrautlistar og frágangslistar eiga alltaf rétt á sér. Þessir listar hér munu styðja við sólbekki og eru nánast ómissandi. 

Efnið er fyrsta flokks
IMG_7803.JPG

Bjóðum einnig smíði glugga og hurða í hús í Funkis stíl.

Íturvaxinn bogagluggi í virðulegri byggingu
Reykjavík veitir fegrunarverðlaunin
Fegrunarviðurkenning borgarinnar 2016

Fegrunarviðurkenning 
Reykjavíkurborgar.

Við erum stolt af því að vera í hópi viðtakenda fegrunarviðurkenninga Reykjavíkurborgar. Hér er mynd frá viðurkenningunni sem veitt var fyrir Tjarnargötu 36 í Reykjavík þann 18. ágúst 2016.

Nýsmíði á hurðum og gluggum í gömlum stíl

Þegar lagt er í endurnýjun á eldri hurðum og gluggum er rétt að huga vel að efnisvali og meðhöndlun. Allt efni hjá Gismoteki er sérvalið og fúavarið fyrir notkun. Lokameðhöndlunin fer eftir smekk húseiganda. Það var einstaklega gaman að smíða og glerja þessar fallegu hurðir í gamla Borgarbókasafnið við Þingholtsstræti.

Nútíma þægindi
Gismotek French doors

 

Huga þarf vel að lömum og krækjum þegar verið er að færa útlit húsa í upprunalegt horf.

Hér er mikil prýði af endurgerðum gluggum
í upprunalegri mynd 
Tjarnargata 36, Reykjavík

Gismotek sérhæfir sig í vandaðri smíði eins og sjá má á Tjarnargötu 36 þar sem sérhæfður frágangur og fagleg vinnubrögð standast tímans tönn og tískustrauma.

bottom of page